Stuðningsfulltrúi – Foldaskóli
Laus er til umsóknar 70-80% staða stuðningsfulltrúa við Foldaskóla skólaárið 2026-2027.
Foldaskóli er heildstæður grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru tæplega 500 en ásamt því að vera hverfisskóli nemenda í 1.-10. bekk í Foldahverfi er hann safnskóli á unglingastigi fyrir Hamra- og Húsahverfi. Við skólann er starfrækt Foldaver, sérdeild fyrir einhverfa.
Leiðsagnarnám og skapandi lærdómssamfélag einkenna skólann ásamt sterkri umhverfisvitund og heilsueflingu en skólinn tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og fylgir grænum skrefum Reykjavíkurborgar. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann er í nálægt við Grafarvoginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi.
Einkunnarorð skólans eru: siðprýði – menntun – sálarheill
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að aðstoða nemendur við þátttöku í skólastarfi og athafnir daglegs lífs.
- Aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra.
- Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra í skólastarfi s.s. í sundi, frímínútum og vettvangsferðum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi.
- Gott vald á íslensku.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Starfshlutfall – 70-80%
Ráðningarform – Tímabundin ráðning
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía María Gunnarsdóttir skólastjóri Olafia.maria.gunnarsdottir@reykjavik.is