Til baka á starfasíðu

Norðlingaskóli - Umsjónarkennari í 3.- 4. bekk

Norðlingaskóli leitar að metnaðarfullum umsjónarkennara til að ganga til liðs við kraftmikinn og skapandi starfsmannahóp í 3.- 4. bekk. Um er að ræða 100% tímabundið starf skólaárið 2026-2027. 

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Sækja um

Norðlingaskóli leitar að metnaðarfullum umsjónarkennara til að ganga til liðs við kraftmikinn og skapandi starfsmannahóp í 3.- 4. bekk. Um er að ræða 100% tímabundið starf skólaárið 2026-2027.

Í Norðlingaskóla leggjum við áherslu á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, skapandi smiðjuvinnu, gott samstarf við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á öflugri teymisvinnu starfsfólks.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1.– 10. bekk. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni:

  • Sinnir umsjón og kennslu nemenda í 3.– 4. bekk og skipuleggur nám þeirra í samstarfi við kennara í teyminu og stjórnendur.
  • Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Áhugi á rafrænum kennsluháttum.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn ásamt fylgiskjölum, þar á meðal leyfisbréfi til kennslu, í gegnum ráðningarkerfi Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.<br>

Frekari upplýsingar um Norðlingaskóla má finna á heimasíðu skólans: nordlingaskoli.is.

Nánari upplýsingar um starfið veita: <br>Guðrún Anna Gunnarsdóttir, skólastjóri 

(gudrun.anna.gunnarsdottir@reykjavik.is) og <br>Ólafur Hilmarsson, aðstoðarskólastjóri 

(olafur.hilmarsson@reykjavik.is)

Sækja um