Frístundaráðgjafi/frístundaleiðbeinandi á frístundaheimili í Breiðholti
Skemmtileg hlutastörf í boði í Breiðholti
Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Frístundamiðstöðin Miðberg starfrækir 6 frístundaheimilIí Breiðholti og leitum við að starfsfólki í Álfheimar við Hólabrekkuskóla, Bakkasel við Breiðholtsskóla, Hraunheima við Hraunberg, Regnbogann við Hólmasel, Vinaheima við Ölduselsskóla og Vinasel við Seljaskóla.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta. (samkvæmt Evrópska tungumálarammanum)
Í boði eru hlutastörf, 20%-50%, eftir hádegi virka daga.
Við leitum að fólki sem getur starfað næsta skólaár og hafið störf 24.ágúst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Herdís Snorradóttir deildarstjóri barnastarfs, herdis.snorradottir@reykjavik.is eða í síma 411 5754