Sérkennsla í Blásölum
Sérkennari/leikskólakennari/þroskaþjálfi/atferlisfræðingur óskast til starfa við sérkennslu í leikskólann Blásali
Blásalir er fjögurra deilda leikskóli við Brekknaás í Árbæ. Áhersla er lögð á útiveru, skapandi starf og gleði. Leikskólinn er með Grænfánann og eru græn gildi og útikennsla einkennandi fyrir starfið. Uppeldisstefna skólans er að miklu leiti byggð á kenningu John Dewey um nám barna. Lögð er áhersla á að efla virðingu fyrir einstaklingnum, sjálfshjálp, félagsfærni og snemmtæka íhlutun. Leiðarljós leikskólans er ,,heilbrigð sál í hraustum líkama” sem vísar til þess að börnin þurfa að borða hollan mat, fá góða hreyfingu og reglulegan svefn til að geta notið þess að vera úti í náttúrunni í hvaða veðri sem er.
Einkunnarorð leikskólans eru Virðing - Gleði - Hreysti - Sköpun
Ef ekki fæst sérkennari, leikskólasérkennari eða þroskaþjálfi til starfa er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið.
Um 80 - 100% starf að ræða
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Veita barni atferlisþjálfun í samstarfi við aðra fagaðila.
- Eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Vinna að gerð einstaklingsnámskráa og fylgja þeim eftir.
- Sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af sérkennslu og stuðningi æskileg
- Reynsla af atferlisþjálfun æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborg
- Góð íslenskukunnátta skilyrði B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi:
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsuræktarstyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmfríður Hannesdóttir leikskólastjóri í síma 411-6820 eða á netfanginu holmfridur.bjargey.hannesdottir@reykjavik.is