Aðstoðarmaður í eldhúsi í Borgum og Hraunbæ 105
Óskum eftir aðstoðarmann í eldhúsi í Borgum og Hraunbæ 105.
Borgir og Hraunbær 105 eru félags- og menningarmiðstöðvar í Grafarvoginum og í Árbæ. Óskum eftir aðstoðarmanni í eldhúsi. Um tvö stöðugildi er að ræða í 50% til 65% starfshlutfalli.
Í Félags og menningarmiðstöðunum er lögð áhersla á gleði og jákvætt andrúmsloft. Alls kyns félagsstarf í gangi allan daginn og fjölbreyttir viðburðir á staðnum. Eldhúsin eru móttöku eldhús, hádegisverður í hádeginu og síðan kaffiveitingar eftir hádegi virka daga. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á bakstri og vera góður í samskiptum.
Verkefni og ábyrgð
Sinnir almennum eldhússtörfum og bakstri.
Sér um að húsnæði sé tilbúið til viðeigandi notkunar og ber ábyrgð á frágangi eftir notkun.
Hæfniskröfur
Efnisþekking á matvælum
Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
Hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Reglusemi og snyrtimennska
Íslenskukunnátta skilyrði B1 skv. samevrópska tungumálarammanum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Allar nánari upplýsingar veitir Birna Róbertsdóttir forstöðumaður á netfanginu birna.robertsdottir@reykjavik.is eða í síma 662-5058.