Stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúi óskast í Selásskóla í 75% starf
Selásskóli óskar eftir stuðningsfulltrúa til starfa. Um er að ræða 50 til 75% starf.
Ráðning er út skólaárið 2026-2027
Selásskóli er grunnskóla með tæplega 200 nemendum í 1. til 7. bekk og óskum við eftir stuðningsfulltrúa í góðan hóp starfsfólks.
Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta.
Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi og upplýsingatækni. Ennfremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi undir verkstjórn kennara.
Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra sérkennslu.
Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.
Hæfniskröfur
Reynsla og áhuga á starfi með börnum.
Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
Vera skipulagður og geta sýnt frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum.
Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði.
Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg.
Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Nánari upplýsingar vetir Rósa Harðardóttir skólastjóri í tölvupósti: rosa.hardardottir@reykjavik.is eða í síma 4116680