Kennari á Leikskólanum Sólborg
Leikskólinn Sólborg óskar eftir að ráða kennara. Um er að ræða fullt starf. Langar þig að starfa í jákvæðu og metnaðarfullu umhverfi þar sem velferð, leikur og nám barna eru í fyrirrúmi? Þá gæti Leikskólinn Sólborg verið rétti vinnustaðurinn fyrir þig.
Sólborg hefur einstaka sérstöðu. Leikskólinn er almennur leikskóli sem er sérhæfður í menntun heyrnarlausra og heyrnarskertra barna og barna sem farið hafa í kuðungsígræðslu. Starfið byggir á tvítyngi þar sem íslenska og íslenskt táknmál eru jafngild mál og skapa grunn að námi, leik og samskiptum allra barna og starfsfólks. Fjölbreytileiki, virðing og þátttaka eru leiðarljós í öllu starfi. Við leitum að öflugum og áhugasömum kennara sem hefur brennandi áhuga á uppeldi og menntun ungra barna og vill taka virkan þátt í að skapa þeim öruggt, hlýtt og hvetjandi námsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Fríðindi í starfi
- Menningarkort/Bókasfnskort
- Samgögnustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvikak fyrir fullt starf
Menntun- og Hæfniskröfur
- Leyfisbréf á réttindum til kennslu og til að bera starfsheitið kennari.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og starfi.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnnaður
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta, á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Þekking á íslensku táknmáli og döff samfélaginu og/eða vilji til að sækja sér þá þekkingu.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands.