Aðstoðarmaður í eldhúsi
Um er að ræða 50% starf í móttökueldhúsi í þjónustuíbúðum aldraðra í Furugerði 1.
Í húsinu eru 76 leiguíbúðir fyrir eldra fólk og er veitt þjónusta í samræmi við þarfir. Vakt er í húsinu allan sólahringinn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða 50% starf í móttökueldhúsi í þjónustuíbúðum fyrir eldra fólk. Vinnan felst í pöntun, móttöku og skömmtun á mat, vinnu í eldhúsi og borðsal, uppvask, þrif og frágangur. Létt matseld og bakstur. Vinnan fer fram á dagvinnutím og aðra hverja helgi.
Hæfniskröfur
- Reynsla af eldhússtörfum og kunnátta varðandi umgengni matvæla
- Snyrtimennska og hreinlæti
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Almenn tölvu og samskiptafærni
- Hreint sakavottorð
Laun og fríindi
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar
Sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar
Samgöngustyrkur
Æskilegr er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Frekari upplýsingar veitir Margrét Albertsdóttir forstöðumaður þjónustuíbúða í Furugerði
margret.albertsdottir@reykjavik.is