Heimastuðningur Reykjavíkur Norðvestur
Ef þú ert félagslynd og lífsglöð manneskja sem hefur gaman af því að aðstoða fjölbreyttan hóp við að lifa innihaldsríku lífi lengur heima hjá sér, þá erum við að leita að þér!
Ef þú ert félagslynd og lífsglöð manneskja sem hefur gaman af því að aðstoða fjölbreyttan hóp við að lifa innihaldsríku lífi lengur heima hjá sér, þá erum við að leita að þér!
Norðurmiðstöð óskar eftir starfsfólki til að sinna heimastuðningi. Um er að ræða 100% dagvinnu eða 80% vaktavinnu.
Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, aðstoð við almenn heimilisstörf, göngutúra, búðarferðir, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Hæfniskilyrði
- Viðkomandi þarf að vera eldri en 18 ára
- Bílpróf
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Íslenskukunnátta á bilinu B1-C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Reynsla af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum æskileg
Fríðindi í starfi
- Sundkort hjá Reykjavíkurborg
- Menningarkort hjá Reykjavíkurborg
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- 36 stunda vinnuvika
- Mötuneyti
- Virt starfsmannafélag
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásdís Jónsdóttir, asdis.jonsdottir@reykjavik.is