Til baka á starfasíðu

Ráðgjafi hjá Barnavernd Reykjavíkur

Starf Ráðgjafa hjá Barnavernd Reykjavíkur

Fullt starf Velferðarsvið 105
Sækja um

Barnavernd Reykjavíkur óskar eftir ráðgjöfum til starfa. Um er að ræða ótímabundnar stöður. Barnavernd Reykjavíkur ber ábyrgð á vinnslu barnaverndarmála samkvæmt barnaverndarlögum og eftirfylgni ákvarðana umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka og mat tilkynninga um óviðunandi aðbúnað barna og unglinga skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002.
  • Könnun á aðbúnaði þeirra, gerð og eftirfylgd meðferðaráætlana.
  • Meðferð, stuðningur og eftirlit í barnaverndarmálum
  • Þátttaka í teymisvinnu og þverfagleg samvinna við aðrar starfseiningar á velferðarsviði, og öðrum sviðum borgarinnar sem sinna þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða sambærileg menntun.
  • Þekking og reynsla af vinnslu barnaverndarmála er æskileg.
  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldur.
  • Framúrskarandi lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti á í íslensku og ensku.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þyrí Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri í

síma 411 9200 og á netfangi thyri.steingrimsdottir@reykjavik.is

Sækja um