Til baka á starfasíðu

Frístundaleiðbeinandi m/umsjón - Félagsmiðstöðin Hellirinn

Frístundamiðstöðin Miðberg óskar eftir að ráða til starfa frístundaráðgjafa/leiðbeinendur með umsjón í félagsmiðstöðina Hellirinn í hlutastörf fyrir skólaárið 2026-2026

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í kringum 24. ágúst. Í boði eru hlutastörf 2-5 virka daga frá 13:35-16:30/17:00 á daginn.

Hlutastarf Frístundamiðstöðin Miðberg 111
Sækja um

Frístundamiðstöðin Miðberg heldur utan um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Breiðholti. Frístundamiðstöðin stendur fyrir fjölbreyttu starfi fyrir börn og ungmenni frá aldrinum 6 – 16 ára. Markmiðið er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Sex frístundaheimili og fjórar félagsmiðstöðavar starfa undir frístundamiðstöðinni.

Félagsmiðstöðin Hellirinn er starfrækt fyrir fötluð börn og unglinga 10 – 16 ára sem búsett eru í Breiðholti.  Hellirinn er opin alla virka daga frá því að skóla lýkur til kl. 17.00. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska fatlaðra barna og unglinga með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Starfið er einstaklingsmiðað og taka börnin og unglingarnir þátt í að móta dagskránna.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í kringum 21. ágúst. Í boði eru hlutastörf 20 – 45% frá 13:35-16:30/17:00 á daginn. Starfsmannafundir eru annan hvern mánudag frá 17:00-19:00 og eru inni í starfshlutfalli.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning og framkvæmd á faglegu starfi samvinnu við þátttakendur og aðra starfsmenn. 
  • Veita börnum með einstakar þarfir leiðsögn og stuðning. 
  • Samskipti og samstarf við börn, unglinga og samstarfsfólk. 
  • Framfylgja stefnu skóla – og frístundasviðs í málefnum frítímans.

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi. 
  • Áhugi á að vinna með börnum og ungmennum í sértæku félagsmiðstöðvarstarfi. 
  • Færni í samskiptum. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Fjölbreytt áhugsvið sem nýtist í félagsmiðstöðvastarfi. 
  • Góð íslenskukunnátta ((B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum).

Vinsamlegast sendið inn starfsferilskrá með umsókn. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. 

Starfshlutfall              20 – 45 % 

Ráðningarform          Tímabundin ráðning 

Nafn sviðs                 Skóla- og frístundasvið

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristrún Lilja Daðadóttir, deildarstjóri unglingastarfs í Miðbergi, netfang: kristrun.lilja.dadadottir@reykjavik.is

Sækja um