Til baka á starfasíðu

Umönnun Droplaugarstaðir

Droplaugarstaðir leita að jákvæðum einstaklingum með góða samskiptahæfileika til starfa við umönnun.

Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili. Við leggjum áherslu á heimilislegt umhverfi og metnað í starfi og samvinnu heimilisfólks og starfsfólks.

Bæði er í boði vaktavinna og dagvinna á virkum dögum.

Lágmarksaldur er 18 ára á árinu 2026.

Fullt starf Reykjavíkurborg
Sækja um

Droplaugarstaðir:

Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir er með virkt gæðakerfi og fékk ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Unnið er eftir Eden alternative stefnunni.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 83 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi.

Við erum staðsett við Snorrabraut, í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Við bjóðum upp á:

  • Gæðavottað starfsumhverfi.
  • Krefjandi og spennandi verkefni.
  • Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp.
  • Heimilislegt vinnuumhverfi.
  • Sveigjanlegan vinnutíma með vaktaóskakerfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umönnun íbúa.
  • Veita íbúum persónulega aðstoð og stuðning við athafnir daglegs lífs.

Hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Frumkvæði og sveigjanleiki.
  • Jákvætt viðmót.
  • Stundvísi.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 
  • Lágmarksaldur 18 ár.
  • Hreint sakavottorð skv. reglum Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi:

  • 36 klst. vinnuvika.
  • Reykjavíkurkort skv. reglum Reykjavíkurborgar.
  • Samgöngusamningur skv. reglum Reykjavíkurborgar.
  • Íþróttastyrkur skv. reglum Reykjavíkurborgar.

Laun eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hróðný Lund á netfanginu hrodny.lund@reykjavik.is

Sækja um