Til baka á starfasíðu

Félagsmiðstöðin Sigyn, hlutastarf

Félagsmiðstöðin Sigyn, Rimaskóla auglýsir eftir starfsfólki í hlutarstarf.

Hlutastarf Félagsmiðstöðin Sigyn - Rimaskóla 112
Sækja um

Við auglýsum eftir öflugu starfsfólki í hlutastarf í félagsmiðstöðina Sigyn. Félagsmiðstöðin er fyrir börn 10-16 ára í Rimaskóla í Grafarvogi. Umsækjendur þurfa að hafa mikinn áhuga á að vinna með börnum og unglingum og vera með stúdentspróf.

Sigyn tilheyrir Frístundamiðstöðinni Brúnni. Brúin starfrækir níu félagsmiðstöðvar í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti og Úlfarsárdal sem heita Ársel, Holtið, Fjörgyn, Sigyn, Vígyn, Fellið, Plútó, Fókus og sértæka félagsmiðstöðin Höllin.

Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf.

Markhópur félagsmiðstöðva eru börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára.

Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er eftir hádegi og á kvöldin.

Um er að ræða tímabundna ráðningu frá 24. ágúst 2026 til byrjun júní 2027.

Umsækjendur þurfa að vera með stúdentspróf.

Verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
  • Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Fjölbreytt færni sem nýtist í starfi með börnum og unglingum.
  • Reynsla af félagsstörfum, eða frítímastarfi með börnum og unglingum.
  • Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Færni í samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Frekari upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags. Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð eða frístundaráðgjafi í félagsmiðstöð sé umsækjandi með háskólapróf. Sjá nánar á https://www.sameyki.is/kaup-og-kjor/kjarasamningar/reykjavikurborg/
  • Vinsamlegast sendið inn starfsferilskrá með umsókn.
  • Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Starfshlutfall 20-50%
  • Tímabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veitir Njörður Njarðarson, forstöðumaður í Sigyn (njordur.njardarson@reykjavik.is) eða Inga Lára Björnsdóttir, deildarstjóri unglingastarfs í Frístundamiðstöðinni Brúnni (inga.lara.bjornsdottir@reykjavik.is).

Sækja um