Sérkennari óskast í leikskólann Björtuhlíð
Stuðningsaðili óskast í leikskólann Björtuhlíð í fullt starf.
Kennari í sérkennslu óskast í starf með börnum með sérþarfir í leikskólann Björtuhlíð. Starfið felur í sér að vera stuðningur við börn með einhverfu frá aldrinum 3-6 ára. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir áhugasama um sérþarfir ungra barna.
Sérkennslustjóri veitir leiðsögn og mikinn stuðning um þær aðferðir sem unnið er með hverju barni fyrir sig.
Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf í skemmtilegum starfsmannahópi. Viðkomandi getur byrjað strax eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Að vinna eftir ráðleggingum sérkennslustjóra um umönnun og stuðning.
- Að sinna þeim verkefnum er varðar stuðning, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Reynsla af uppeldisstörfum með börnum æskileg
- Áhugi á útikennslu
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
- Frír hádegismatur; hægt að fá vegan og grænmetismat.
- Samgöngustyrkur.
- Sundkort; frítt í 7 sundlaugar Reykjavíkurborgar allt árið.
- Líkamsræktarstyrkur.
- Menningarkort; frítt í öll söfn borgarinnar og bókasafnskort.
- Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi.
Frekari upplýsingar um starfið
Frekari upplýsingar gefur Rakel Ólafsdóttir, leikskólastjóri rakel.olafsdottir@reykjavik.is og Jóhanna Ögmundsdóttir johanna.ogmundsdottir@reykjavik.is, sérkennslustjóri bjartahlid@reykjavik.is, s. 411-3600.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.
Leikskólinn er staðsettur í tveim húsum, annað er staðsett í Stakkahlíð þar sem börn á aldrinum 1-3 ára eru og hitt liggur í Grænuhlíð en þar eru börnin frá 3-6 ára.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.