Til baka á starfasíðu

Vakstjóri Sundhöll Reykjavíkur

Sundhöll Reykjavíkur óskar eftir vaktstjóra til starfa! 

Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu. 

Sundlaugarnar eru tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi og hefur ánægju af því að umgangast og þjónusta viðskiptavini.

Fullt starf Sundhöll 101
Sækja um

Sundhöll Reykjavíkur óskar eftir vaktstjóra til starfa. Um er að ræða 100% starf.

Sundlaugarnar eru tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi og hefur ánægju af því að umgangast og þjónusta viðskiptavini.

Starfsfólk vinnur á sviði íþrótta-og tómstunda og eru lykillinn að því að veita viðskiptavinum sínum fyrsta flokks þjónustu. Lögð er áhersla á jafnrétti, starfsþróun og vellíðan starfsfólks.

Verksvið eða meginverkefni starfs

  • Stýrir verkaskiptingu á milli starfsfólks innan vaktar.
  • Sér um skipulagningu vakta og afleysingu vegna fjarvista og veikinda.
  • Móttaka og þjálfun nýs starfsfólks á vakt samkvæmt verkferlum (þjálfunaráætlun). 
  • Hefur eftirlit með húsnæði, áhöldum, leiktækjum og vélbúnaði, kemur ábendingum áleiðis eftir því sem við á ásamt því að lagfæra og þrífa eftir því sem við verður komið. 
  • Hefur eftirlit með afgreiðslu og kortakerfi ásamt skiptimynt og uppgjöri. 
  • Sér um innkaup í samráði við forstöðumann.
  • Sér um móttöku á vörum og frágangi eða förgun á sorpi. 
  • Stýrir reglulegum vaktfundum einu sinni til tvisvar í mánuði. 
  • Stýrir neyðaræfingum mánaðarlega.
  • Þátttaka í vaktstjórafundum og forstöðumannafundum eftir þörfum. 
  • Ber ábyrgð á í samráði við forstöðumann að stefnum Reykjavíkurborgar sé framfylgt 
  • Annast önnur þau störf sem vaktstjóra kunna að vera falin af forstöðumanni og falla innan eðlilegs stafsviðs hans. 

Ábyrgð í starfi

  • Vaktstjóri ber ábyrgð á vaktinni og er verkstjórnandi þar sem hann hefur umsjón með daglegum störfum starfsfólks. Vaktstjóri heyrir sjálfur undir forstöðumann. 
  • Yfirumsjón með skipulagningu, eftirliti og mönnun vakta. 
  • Framkvæmd og eftirlit með öryggismálum, upplýsingar um öryggismál til starfsfólks og gesta. 
  • Ber ábyrgð á að unnið sé samkvæmt starfs- og verklýsingum og umgengnisreglum.
  • Vaktstjóri ber ábyrgð á daglegu uppgjöri og hefur yfirumsjón með afgreiðslu- og kortakerfi.
  • Vaktstjóri ber ábyrgð á að reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sé framfylgt.
  • Vakstjóri þarf að geta gengið í öll störf innan vaktar.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi sambærileg stúdents- eða sveinsprófi eða jafngildrar þekkingar á starfssviðinu. 
  • Nám eða námskeið á sviði stjórnunar eða þjónustumála. 
  • Reynsla af verk- og starfsmannastjórnun.
  • Reynsla af þjónustustarfi. 
  • Skipulagshæfileikar. 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þjónustulund. 
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Almenn tölvukunnátta skilyrði. 
  • Gott vald á íslensku máli (B2).
  • Gott vald á ensku (B2).
  • Krafa um endurmenntun í skyndihjálp og sérhæft námskeið um björgun úr laug og æskilegt að standast árlegt hæfnispróf laugarvarða. 
  • Hreint sakavottorð. 
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. 
  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis. 

Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja með í viðhengi.

Sækja um