Kennari. Kennslugrein: textilmennt
Frá og með 1. ágúst 2026 er laus er til umsóknar 50-100% staða kennara í Austurbæjarskóla. Aðal kennslugrein er textilmennt. Um tímabundna ráðningu út næsta skólaár er að ræða með möguleika á framlengingu.
Frá og með 1. ágúst 2026 er laus er til umsóknar 50-100% staða kennara við Austurbæjarskóla. Um er að ræða tímabundna ráðningu út næsta skólaár með möguleika á fastráðningu. Aðalkennslugrein er textílmennt. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
- Vinna í teymi með öðrum kennurum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Menntun og hæfni til að sinna textílkennslu og starfa með börnum.
- Reynsla og áhugi á kennslu nemenda með fjölbreyttar þarfir.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristin.Johannesdottir@reykjavik.is eða í síma 411-7200.