Til baka á starfasíðu

Stuðningsráðgjafi óskast í SkaHm þekkingarmiðstöð

SkaHm er heildstæð þjónusta fyrir börn og ungmenni með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldur þeirra.

Fullt starf Skammtímadvöl Vesturbrún 109
Sækja um

SkaHm óskar eftir metnaðarfullum fagaðila til starfa með börnum og ungmennum.

Langar þig að starfa í fjölbreyttu og gefandi umhverfi þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna? Þá gæti SkaHm verið vinnustaðurinn fyrir þig.

Þjónusta SkaHm skiptist í tvö svið, Dvalar- og Ráðgjafarsvið.

Undir Dvalarsviði er Styrkur og Dvöl.

Styrkur – Þar sem markmiðið eru að styðja barnið við að efla félagsfærni, sjálfstæði og virkni í daglegum athöfnum. Stuðningurinn fer annars vegar fram í einstaklingsstarfi og hins vegar í hópastarfi.

Dvöl – Er sólarhringsþjónusta þar sem markmiðið er að veita börnum og foreldrum tímabundna hvíld með það að leiðarljósi að draga úr streituvaldandi aðstæðum sem hafa skapast inn á heimili. Auk þess felst starfsemin í því að styðja barnið í athöfnum daglegs lífs.

Undir Ráðgjafasviði er Heimastuðningur og ráðgjöf.

Heimastuðningur og ráðgjöf - Leggur áherslu á að styðja barn í tilfinningavanda og valdefla/styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Þjónustan er veitt í nærumhverfi fjölskyldunnar.

Laus staða er á Dvalarsviði.

Allt starf SkaHm byggir á teymisvinnu þar sem unnið er að farsæld barnsins.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ígrunduð þjónusta og stuðningur sem veittur er til að stuðla að farsæld barna.
  • Vera þátttakandi í samþættingu þjónustu við barn og fjölskyldu þess.
  • Mæta þörfum barns á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt til að auka félagsfærni, virkni og tilfinningaþroska.
  • Stefnumótunarvinna með teymisstjóra og öðru starfsfólki.
  • Samstarf við þjónustumiðstöðvar, málstjóra farsældar, Barnavernd Reykjavíkur og aðra þjónustuaðila sem koma að málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda.
  • Þekking og reynsla af starfi með börnum og ungmennum.
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
  • Íslenskukunnátta B1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Um er að ræða 90% starf í vaktavinnu. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Óskarsdóttir teymisstjóri sandra.oskarsdottir@reykjavik.is og Sigrún Sigurðardóttir forstöðumaður sigrun.sigurdardottir3@reykjavik.is

Sækja um