Afleysing - Ársel: Aðstoðarforstöðumaður í félagsmiðstöð
Við leitum að aðstoðarforstöðumanni í félagsmiðstöðina í Ársel, afleysing til eins árs! Ársel er staðsett við hliðina á Árbæjarskóla, en þjónustar börn á aldrinum 10-16 ára í Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla. Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Frístundamiðstöðin Brúin auglýsir starf aðstoðarforstöðumanns í félagsmiðstöðinni Árseli, afleysingu til eins árs, lausa til umsóknar. Ársel er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Brúnni sem er meðal annars með níu félagsmiðstöðvar í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal, Árbæ og Norðlingaholti.
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Markmið félagsmiðstöðva er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Markhópur félagsmiðstöðva eru börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára. Félagsmiðstöðin Ársel er staðsett við hliðina á Árbæjarskóla, en þjónustar börn á aldrinum 10-12 ára í Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla og unglinga á aldrinum 12-16 ára í Árbæjarskóla.
Vakin er athygli á því að Reykjavík er hinseginvæn borg og að vinnustaðir eigi að endurspegla það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
* Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
* Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
* Starfsmannamál.
* Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.
*Aðstoðarforstöðumaður er staðgengill forstöðumanns
Hæfniskröfur
* Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
* Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
* Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
* Reynsla af frítímastarfi.
* Reynsla af stjórnun.
* Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
* Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
* Góð færni í samskiptum.
* Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
* Góð íslenskukunnátta.
Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis, launaflokkur 259.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Þórðarson, forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Árseli, bjarni.thordarson@reykjavik.is
Frístundamiðstöðin Brúin
Austurmiðstöð