Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimilið Glaðheima
Frístundamiðstöðin Kringlumýri óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til starfa í stöðu aðstoðarforstöðumanns í frístundaheimilið Glaðheimar.
Frístundamiðstöðin Kringlumýri óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til starfa í frístundaheimilið Glaðheima.
Frístundamiðstöðin Kringlumýri starfrækir frístundaheimilin Álftabæ við Álftamýrarskóla, Krakkakot við Hvassaleitisskóla, Neðstaland við Fossvogsskóla, Sólbúa við Breiðagerðisskóla, Vogasel við Vogaskóla, Glaðheima við Langholtsskóla, Laugarsel við Laugarnesskóla og Dalheima sem er fyrir börn í 3. og 4.bekk úr Langholtsskóla og Laugarnesskóla.
MARKMIÐ OG TILGANGUR STARFS
Að veita 6–9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi.
Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra barna með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í frístundaheimilinu.
Sjá skal til þess að öll börn njóti jafnræðis óháð uppruna, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum,stjórnmálaskoðunum, kynferði, kynhneigð, aldri, efnahag, ætterni, fötlun, heilsufari eða annarri stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegri starfsemi frístundaheimilis í samvinnu við forstöðumann.
- Tekur þátt í að skipuleggja starfið í samráði við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Umsjón með faglegu innra starfi í samvinnu við forstöðumann.
- Staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á uppeldissviði, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur sambærileg menntun.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Skipulagshæfileikar og hæfni i samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Almenn tölvukunnátta og góð íslenskukunnátta (b2 samkvæmt tungumálaviðmiði)
Fríðindi í starfi
- Sundkort.
- Stytting vinnuviku.
- Samgöngusamningur.
Krafist er að einstaklingur sé með hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Árni Magnússon
Tölvupóstur
arni.magnusson@reykjavik.is