Til baka á starfasíðu

Sérkennslustjóri - Stakkaborg

Vilt þú vinna á skemmtilegum og notalegum vinnustað þar sem enginn vinnudagur er eins? Viltu vinna með starfsfólki sem leggur alúð og metnað í vinnuna sína? Þá erum við í Stakkaborg rétti staðurinn fyrir þig. Við erum öflugur hópur sem vinnur með frábærum barnahóp og erum alltaf að takast á við eitthvað nýtt. Hver dagur er ævintýri

Fullt starf Leikskólinn Stakkaborg 105
Sækja um

Stakkaborg er fimm deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á leikinn. Markvisst er unnið með flæði, hreyfingu og tónlist. Einkunarorð leikskólans eru gleði, hreyfing og vinátta. Innan leikskólans vinnur öflugt starfsfólk sem leggur áherslu á að öllum börnum líði vel í leikskólanum. Við erum dugleg að fara í leiki, nýta útikennslu og það sem umhverfið okkar býður uppá.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirumsjón með skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.

Yfirumsjón með gerð verkefna og gerð einstaklingsnámskráa.

Yfirumsjón með samskiptum við foreldra, sérkennsluráðgjafa og aðra sem koma að sérkennslu.

Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsmenn.

Að veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.

Hæfniskröfur

Leikskólasérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.

Reynsla af sérkennslu.

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Frumkvæði, áhugi og faglegur metnaður í starfi.

Góð íslenskukunnátta.

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • sundkort
  • menningarkort
  • Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mán. í starfi
  • afsláttur af dvalargjaldi
  • samgöngusamningur
  • frír hádegismatur

Laun er samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins að fengnu upplýstu samþykki umsækjanda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.

Sækja um