Til baka á starfasíðu

Vesturbæjarskóli - Stuðningsfulltrúi

Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa í 65-75% starf í Vesturbæjarskóla.

Hlutastarf Vesturbæjarskóli 101
Sækja um

Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa í 65-75% starf í Vesturbæjarskóla.

Vesturbæjarskóli er í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 280 nemendur í 1.-7. bekk og 50 starfsmenn. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti sem kennarar hafa sameinast um, verk- og listgreinakennslu, valtíma og útikennslu og markvisst er unnið að skólaþróun. Kennarar vinna í teymum og deila ábyrgð á námi og velferð nemenda. Skólabragurinn einkennist af jákvæðum anda, samstarfi og virðingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vera kennurum til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð.
  • Að aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs.
  • Að auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs.
  • Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði.
  • Íslenskukunnátta C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Evropski-tungumalaramminn.pdf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar 

Allar upplýsingar um starfið veita Margrét Einarsdóttir, skólastjóri Vesturbæjarskóla, margret.e@reykjavik.is, s. 411-7150 og 664-8276 og Hrefna Birna Björnsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu Vesturbæjarskóla, hrefna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is, s: 845-9096.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Um er að ræða 65-75%.

Sækja um