Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju
Frístundaheimilið Gulahlíð og félagsmiðstöðvarnar Hekla og Askja óska eftir að ráða stuðningsfulltrúa veturinn 2026-2027. Markmið frístundastarfs er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Staðirnir standa fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónusta börn og unglinga úr Klettaskóla/Korpuskóla.
Frístundaheimilið Gulahlíð og félagsmiðstöðvarnar Hekla og Askja óska eftir að ráða stuðningsfulltrúa í starf veturinn 2026 - 2027. Þessir staðir eru starfræktir undir Frístundamiðstöðinni Kringlumýri sem starfrækir sex aðrar félagsmiðstöðvar og átta önnur frístundaheimili í Laugardal- Háaleiti- og Bústaðahverfi.
Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Frístundaheimilið Gulahlíð og félagsmiðstöðvarnar Hekla og Askja standa fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónustar unglinga úr Klettaskóla/Korpuskóla. Klettaskóli/Korpuskóli er sérskóli fyrir börn og unglinga með fötlun.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Í boði er 30-50% hlutastarf eftir hádegi á virkum dögum kl. 13:30-17. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-16 ára börn og ungmenni.
- Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 30-50%
Ráðningarform Tímabundin ráðning
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Þóra Böðvarsdóttir
elin.thora.bodvarsdottir@reykjavik.is
Frístundaheimilið Gulahlíð - Kringlumýri
Vesturhlíð 3
105 Reykjavík
Félagsmiðstöðin Hekla - Kringlumýri
Suðurhlíð 9
105 Reykjavík
Félagsmiðstöðin Askja - Kringlumýri
Bakkastöðum 2
112 Reykjavík