Til baka á starfasíðu

Réttarholtsskóli - Kennari skólaárið 2026-2027

Réttarholtsskóli – kennari skólaárið 2026-2027

Fullt starf Réttarholtsskóli 108
Sækja um

Við í Réttarholtsskóla leitum að kennara í 100% starfshlutfall skólaárið 2026-2027.

Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum eru 450 nemendur og starfsmenn rúmlega 60. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing- virkni – vellíðan og áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Annast kennslu í íslensku og stærðfræði í samráði við skólastjórnendur og samstarfsfólk.

Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.

Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

Menntun og hæfni til almennrar kennslu á unglingastigi.

Áhugi á að starfa með unglingum.

Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.

Faglegur metnaður.

Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í s: 411-6900 og í tölvupósti margret.sigfusdottir@reykjavik.is

Starfshlutfall 100%

Ótímabundin ráðning

Sækja um