Til baka á starfasíðu

Skrifstofustjóri

Skrifstofustjóri

Hlutastarf Hlíðaskóli 105
Sækja um

Hlíðaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 10. bekk og er staðsettur við Hamrahlíð 2.

Í skólanum eru rúmlega 620 nemendur og er starfrækt við skólann Táknmálssvið. Starfsmenn skólans eru um 120. Hlíðarskóli er þekkingarskóli í leiðsagnarnámi og hefur mikinn metnað fyrir listgreinum, leiklist og söng.

Kjörorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinsemd og eru þau leiðarljós í öllu skólastarfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð skrifstofustjóra eru m.a.:

· Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofunnar, innkaup á námsbókum og stærri innkaupum rekstrarvara

· Umsjón með fjármálum og bókhaldi skólans í samráði við skólastjóra

· Móttaka og þjónusta við starfsfólk, nemendur, foreldra og gesti

· Símsvörun og miðlun upplýsinga

· Umsjón með vinnustund

· Rafræn umsýsla og skjölun á gögnum

· Umsjón með forfallaskráningu og skipulagi forfalla í samráði við skólastjórnendur

· Umsjón með túlkaþjónustu

· Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjórnendur fela skrifstofustjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur

· Góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum

· Góð tölvukunnátta (excel, word, bókhalds- og launakerfi)

· Þekking og reynsla af Vinnustund er kostur

· Reynsla af störfum með börnum er æskileg

· Góð samskiptafærni og nákvæm vinnubrögð

· Þjónustulund og fagleg framkoma

· Stundvísi og áreiðanleiki er mikill kostur

· Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1)

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína ásamt öllum fylgiskjölum í gegnum vef Reykjavíkurborgar um laus störf sem starfið er auglýst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Stefánsdóttir skólastjóri í síma 4116650 eða í gegnum tölvupóst berglind.stefansdottir@reykjavik.is

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er

Sækja um