Deildarstjóri
Óskum eftir kennara í 50% stöðu deildarstjóra og 50 % kennslu í Selásskóla frá og með 1.ágúst 2026
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í Selásskóla í 50% stöðu og almenna kennslu í 50% frá og með 1. ágúst 2026. Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 180 nemendur og um 40 starfsmenn.
Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta.
Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi og upplýsingatækni. Ennfremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru. Síðustu ár hefur Selásskóli fengið viðurkenningar fyrir framsækið skólastarf sem leggur áherslu á STEM kennslu og sköpun.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is og á Facebooksíðu skólans.<br>
Verkefni og ábyrgð
- Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans. Hlutverkið felur í sér að tryggja gæði kennslu, vellíðan nemenda og faglegt samstarf innan skólans. Deildarstjóri heyrir undir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
- Deildarstjóri vinnur náið með kennurum og stoðþjónustu.
- Stýrir faglegu starfi út frá stefnu skólans
- Vinnur að öflugu samstarfi innan og utan skólasamfélagsins
- Starfar í anda laga um farsæld barna
- Alemenn kennsla á miðstigi
- Önnur verkefni sem deildarstjóra kunna að vera falin
- Leiða faglegt starf kennara á miðstigi
- Skipuleggja og samræma kennslu, námsáætlanir og faglega þróun.
Hæfniskröfur
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af kennslu og deildarstjórastörfum í grunnskóla.
- Góð leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp jákvætt og faglegt starfsumhverfi.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og fagleg dómgreind.
- Þekking og reynsla af uppeldi til ábyrgðar, teymiskennslu og leiðsagnarnámi
- Færni í notkun skóla- og upplýsingakerfa.
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Áhugi á skólaþróun
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Hreint sakarvottorð
Frekari upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
- 100% Starfshlutfall
- Umsóknarfrestur 26.06. 2026
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rósa Harðardóttir skólastjóri í síma 4116680 og tölvupósti rosa.hardardottir@reykjavik.is