Til baka á starfasíðu

Sérkennsla

Leikskólinn Miðborg auglýsir eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða einstakling með sambærilega menntun í sérkennsluteymi leikskólans. Um er að ræða 100% stöðu við að sinna sérkennslu inn á deild. Viðkomandi mun vinna í teymi undir handleiðslu sérkennslustjóra leikskólans.

Fullt starf Leikskólinn Miðborg 101
Sækja um

Miðborg er starfandi í tveimur húsum með 115 börn í miðbæ Reykjavíkur. Nálægðin við miðbæinn ýtir undir fjölmenningarlegt, fjölbreytt og skemmtilegt starf. Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar framundan. Við leggjum áherslu á sjálfssprottinn leik þar sem hugmyndafræðin um flæði er í forgrunni. Að mynda góð tengsl við börn og foreldra skiptir okkur miklu máli svo öll getum við blómstrað í öruggu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning
  • Eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskráa og fylgja þeim eftir
  • Sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum

Hæfniskröfur

  • Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af sérkennslu og stuðningi æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði, hæfniviðmið B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi:

  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið veit

Sækja um