Til baka á starfasíðu

Norðlingaskóli - Kennari í hönnun og smíði

Norðlingaskóli leitar að kennara í hönnun og smíði til að ganga til liðs við kraftmikinn og skapandi starfsmannahóp. Um er að ræða 100% tímabundið starf vegna forfalla frá 1. ágúst 2026 fram að áramótum, með möguleika á framlengingu.

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Sækja um

Í list- og verkgreinateymi skólans starfar öflugur hópur kennara sem vinnur náið saman að fjölbreyttum og skapandi verkefnum með nemendum. Samstarf list- og verkgreinakennara við aðra kennara skólans er m.a. í gegnum smiðjuvinnu þar sem unnið er að þemaverkefnum og leiklistarsýningum. Góð aðstaða til list- og verkgreinakennslu styður við samstarf, samþættingu námsgreina og skapandi skólastarf.

Í Norðlingaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Norðlingaholti og er mikilvægur hluti af samfélaginu. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni

  • Annast kennslu nemenda í samstarfi við skólastjórnendur og aðra kennara.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Menntun og/eða reynsla á sviði hönnunar og smíði.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Áhugi á skapandi kennsluháttum og þróun skólastarfs.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. 

Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn ásamt fylgiskjölum, þar á meðal leyfisbréfi til kennslu, í gegnum vef Reykjavíkurborgar um laus störf þar sem starfið er auglýst.

Frekari upplýsingar um Norðlingaskóla má finna á heimasíðu skólans: nordlingaskoli.is. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri, í gegnum netfangið adalbjorg.ingadottir@reykjavik.is

Sækja um