Tónmenntakennari í Seljaskóla
Laus er til umsóknar 50% staða tónmenntakennara í Seljaskóla frá og með hausti 2026.
Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Þar sækja rúmlega 650 nemendur skóla og við hann starfa um 100 starfsmenn. Starfið byggir á grunngildum skólans, samvinnu- ábyrgð- trausti – og tillitssemi og er skólastarf sem stuðlar að vellíðan nemenda og starfsmanna (SÁTT). Sérstök áhersla er lögð á félagsfærni og sjálfseflingu í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast.
Allt starf Seljaskóla byggir á teymisvinnu og vinna kennarateymi saman að kennslu árgangs, þróun skólastarfs og samvinnu við foreldra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og annast tónmenntakennslu.
- Annast kennslu nemenda samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla í samráði við skólastjórnendur og teymi list- og verkgreinakennara.
- Heldur utan um tónmenntastofu skólans.
- Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Menntun og hæfni til að kenna tónmennt.
- Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg sérstaklega í tónmennt eða öðrum list- og verkgreinum.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni og áhugi á að vinna með öðrum.
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum og samstarfi.
- Heiðarleiki og stundvísi.
- Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað, a.m.k. C1 samkvæmt Samevrópska matsrammanum.
- Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Hlunnindi
- Menningarkort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Starfshlutfall 50%
Umsóknarfrestur 19. júní 2026
Ráðningarform Tímabundin ráðning.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri í síma 411-7500 eða með því að senda fyrirspurn á johanna.hedinsdottir@reykjavik.is