Leikskólakennari/leiðbeinandi
Við leitum að skapandi og áhugasömu fólki með leikskólakennaramenntun/þekkingu til að vinna með ungum börnum. Þar sem Miðborg er stækkandi leikskóli leitum við af kennurum með opið hugarfar, tilbúin að styðja við og efla starfið. Leikskólinn er að taka þátt spennandi þróunarverkefni Heillaspor sem er innleiðingaverkefni Reykjavíkurborgar.
Miðborg er 8 deilda leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Barónsstíg 34.
Við leitum að skapandi og áhugasömu fólki með leikskólakennaramenntun/reynslu, þekkingu til að vinna með ungum börnum. Þar sem Miðborg er stækkandi leikskóli leitum við einnig af kennurum með opið hugarfar, tilbúin að styðja við og efla starfið. Leikskólinn er að taka þátt í spennandi þróunarverkefni en Miðborg er hluti að Heillaspor (Nurture) innleiðingaverkefni Reykjavíkurborgar.
Íslenskukunnátta á stigi B2 skilyrði.
Nálægðin við miðbæinn ýtir undir fjölmenningarlegt, fjölbreytt og skemmtilegt starf. Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar fram undan. Við leggjum áherslu á sjálfssprottinn leik þar sem hugmyndafræðin um flæði er í forgrunni. Að mynda góð tengsl við börn og foreldra skiptir okkur miklu máli svo öll getum við blómstrað í öruggu umhverfi.
Ráðið er í starfið eftir sumarleyfi eða eftir samkomulagi.
Verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
- Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi.
- Menningarkort – bókasafnskort.
- Samgöngustyrkur.
- Sundkort.
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
- Heilsuræktarstyrkur
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ösp Jónsdóttir leikskólastjóri. Netfangið er midborg@reykjavik.is