Til baka á starfasíðu

Leikskólastjóri - Geislabaugur

Staða leikskólastjóra í leikskólanum Geislabaugi er laus til umsóknar. Leitað er að leikskólakennara með farsæla stjórnunarreynslu og leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að leiða metnaðarfullt starf hjá Geislabaugi.

Fullt starf Leikskólinn Geislabaugur 113
Sækja um

Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 105 börnum. Leikskólinn stendur við Kristnibraut 26 í Grafarholti í Reykjavík.

Einkunnarorð leikskólans eru Virðing - Sköpun - Gleði - Jafnrétti. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem barnið er í brennidepli og leikurinn er hornsteinn starfsins.

Áhersla er lögð á skapandi starf, lýðræði og gefa öllum börnum jöfn tækifæri til náms, einnig hefur leikskólinn innleit jákvæðan aga. Geislabaugur hefur fengið Hvatningaverðlaun skóla og frístundaráðs og fengið styrk fyrir kennara til náms og þjálfunar á Ítalíu frá Erasmus +.

Gott samstarf er á milli bæði leik og grunnskólana í hverfinu og hefur leikskólinn tekið þátt í þróunarverkefni sem hafði það markmið að efla læsi í hverfinu, verkefniið heitir Orð eru til alls vís. Geislabaugur hefur á virkan hátt innleitt menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ frá upphafi stefnunar og sinnir því enn af metnaði.

Geislabaugur er metnaðarfullur og framsækinn leikskóli sem horfir frekar til tækifæra en hindrana.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar.
  • Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
  • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn.
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum.
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
  • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
  • Lipurð og hæfni í samskiptum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Nánari upplýsingar

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.

Um er að ræða 100% stöðu og verður ráðið ótímabundið.

Starfið er laust 1. september nk. eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð, í tölvupósti Hildur.Lilja.Jonsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-1400/863-2871.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um