Til baka á starfasíðu

Sérfræðingur í fræðslumálum

Reykjavíkurborg leitar að sérfræðingi á sviði fræðslumála á skrifstofu starfsþróunar og starfsumhverfis. Meðal verkefna eru umsjón með sameiginlegum staðnámskeiðum og gerð stafræns fræðsluefnis fyrir Torgið stafrænt fræðslukerfi Reykjavíkurborgar. 

Fullt starf Skrifstofa starfsþróunar og starfsumhv. 101
Sækja um

Reykjavíkurborg leitar að sérfræðingi á sviði fræðslumála í 100% starf á skrifstofu starfsþróunar og starfsumhverfis. Meðal verkefna eru umsjón með sameiginlegum staðnámskeiðum og gerð stafræns fræðsluefnis fyrir Torgið stafrænt fræðslukerfi Reykjavíkurborgar.

Skrifstofan er hluti af mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á og veitir ráðgjöf um fræðslu og innri miðlun, viðverumál og heilsueflingu, öryggi og vinnuvernd. Mannauðs- og starfsumhverfissvið er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Mannauðsstefna Reykjavíkurborgar hefur þá framtíðarsýn að Reykjavíkurborg sé einn vinnustaður þar sem öflugu starfsfólki er búið gott starfsumhverfi og tækifæri til að blómstra í samvinnu við sterka stjórnendur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með forystunámi Reykjavíkurborgar, þ.m.t. skipulag og þróun til framtíðar.
  • Umsjón með íslenskukennslu á starfsstöðum, Bara tala og samfélagsfræðslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna.
  • Framleiðsla og miðlun á fræðsluefni í Torginu stafrænu fræðslukerfi, Viva Engage og á innri vef.
  • Öflun fræðslustyrkja og utanumhald um fjármögnun og stöðu verkefna.
  • Þátttaka í vinnuhópum og öðrum verkefnum á sviði mannauðsmála.

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála æskileg.
  • Reynsla af fræðslumálum starfsfólks er skilyrði og önnur mannauðsreynsla æskileg.
  • Reynsla af vinnu í mannauðskerfum/fræðslukerfum eða framleiðsla á stafrænu fræðsluefni er kostur.
  • Færni í helstu Office forritum og áhugi á að læra á nýtt fræðslukerfi.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Ríkur þjónustuvilji og færni í samvinnu og samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 og enskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Við bjóðum

  • Áhugavert starf við eflingu stjórnenda og starfsfólks
  • 36 stunda vinnuviku
  • Heilsustyrk
  • Frítt í sund og aðgang að söfnum
  • Samgöngusamning
  • Gott mötuneyti

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Ásta Bjarnadóttir (asta.bjarnadottir@reykjavik.is)

Sækja um