Til baka á starfasíðu

Leikskólastjóri

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Seljaborg lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.

Fullt starf Leikskólinn Seljaborg 109
Sækja um

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Seljaborg lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.

Seljaborg er fjögurra deilda leikskóli með 65 börnum. Leikskólinn stendur við Tungusel í Breiðholti. Leikskólinn er í dag þriggja deilda en gert er ráð fyrir að ný deild ásamt endurbættu starfsmannarými verði opnað eftir sumarleyfi. Gott útivistarsvæði er í nágrenni leikskólans.

Áhersluþættir leikskólans eru lýðræði, valdefling og virk þátttaka barna í skapandi og inngildandi leikskólastarfi þar sem leikur, læsi, útinám og sjálfstæði eru lykilþættir.

Námskrá skólans byggir á leik sem meginnámsleið barnsins og fjölbreyttum tækifærum til náms, sköpunar og áhrifa í lýðræðislegu skólasamfélagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða,aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar
  • Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni
  • Standa vörð um farsæld, velferð og nám barna skólans
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deila ábyrgð á velferð barna.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf
  • Leikskólakennaramenntun er æskileg
  • Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í leikskóla æskileg
  • Kennslureynsla á leikskólastigi
  • Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun
  • Lipurð og hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði.
  • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Nánari upplýsingar

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari og kynningarbréf þar sem fram koma helstu ástæður þess að sótt er um starfið.

Á grundvelli samþykktar fyrir skóla- og frístundaráð ræður sviðsstjóri í starf leikskólastjóra og eru kjör samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.

Um er að ræða 100% stöðu sem er laus frá 1. september 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Helga Pálmadóttir, fagstjóri leikskóla í Suðurmiðstöð, á netfanginu elisabet.h.palmadottir@reykjavik.is eða í síma 6939802.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um