Til baka á starfasíðu

Sérfræðingur á Borgarbókasafninu Gerðubergi

Borgarbókasafnið Gerðubergi auglýsir lausa til umsóknar, 100% stöðu sérfræðings, með áherslu á Fríbúðina í Gerðubergi, dagskrárgerð, bókanir viðburða í húsið og eftirfylgni með þeim auk þjónustuvakta á safni.

Við leitum af einstaklingi með brennandi áhuga á almenningsbókasöfnum og endurvinnslu.

Fullt starf Borgarbókasafnið Gerðubergi 101
Sækja um

Leitað er að starfsmanni með reynslu af viðburðarhaldi og dagskrárgerð þar sem grænir viðburðir og sjálfbærni er leiðarstefið.

Markmið Borgarbókasafns er að auka lýðræði og jöfnuð, efla læsi og auka aðgengi borgarbúa að fræðslu og menningartengdu efni. Borgarbúar eru hvattir til þátttöku í að efla safnið sem miðstöð menningar og mannlífs, fræðslu og sköpunar.

Leitað er eftir skipulögðum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund og einlægan áhuga á að vinna með starfsmannahópi safnsins að ofangreindum markmiðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón með Fríbúðinni í Gerðubergi

Bókun viðburða í sal Borgarbókasafnsins í Gerðubergi

Dagskrárgerð og eftirfylgni viðburða í samstarfi við safnstjóra

Afgreiðsluvaktir á safni og upplýsingaþjónusta við notendur safnsins

Þátttaka í uppbyggingu á safnkosti

Samskipti við fagaðila, félagasamtök, og notendur í Gerðubergi í tengslum við verkefnin og á staðnum

Önnur verkefni sem safnstjóri leggur til

Hæfniskröfur:

Háskólapróf  (BA/BS) sem nýtist í starfi

Starfsreynsla, að lágmarki tvö ár, sem nýtist í starfi

Mjög góð færni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og þjónustulund

Áhugi og reynsla af starfsemi/verkefnum sem tengjast sjálfbærni og hringrásarhagkerfinu

Gott vald á upplýsingatækni og miðlun efnis á vef og á samfélagsmiðlum

Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi

Frumkvæði, jákvæðni, metnaður og færni í að vinna í hóp

Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna fjölbreyttum viðfangsefnum

Nánari upplýsingar um starfið

Borgarbókasafnið í Gerðubergi  er opið flesta daga ársins og skipta starfsmenn með sér kvöld- og helgarvöktum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Vinnuvikan er 36 tímar og starfsfólki borgarinnar stendur til boða frír aðgangur í sund og á söfn borgarinnar, auk líkamsræktarstyrks og samgöngusamnings.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Borgarbókasafnið er Regnbogavottaður vinnustaður.

Forsenda ráðningar er að aflað verði upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins, að fengnu upplýstu samþykki umsækjanda, í því  skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Ilmur Dögg Gísladóttir, safnstjóri.

ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is

Sækja um