Sérkennsla - Langholt
Langholt er átta deilda leikskóli við Sólheima í Reykjavík og er starfræktur í þremur byggingum.
Gróið umhverfi, nálægð við Laugardalinn og skemmtilegur húsakostur býður upp á spennandi leiðir til þess að mennta og hlúa að fjölbreyttum hópi barna.
Við í Langholti óskum eftir metnaðarfullum kennara í sérkennsluteymið okkar.
Helstu verkefni eru að vinna í teymi sérkennslunnar og veita þeim börnum sem og deildum stuðning til þess að allir geti notið sín í námi. Skipuleggja starfið og það sem þarf að vinna að hverju sinni í samstarfi við sérkennslustjóra og aðra í sérkennsluteymi.
Starfinu fylgir mikil samskipti við foreldra og samstarf um velferð barna.
Í Langholti leggjum við áherslu á að draumar allra barna geti ræst og að öll börn geti notið sín.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna í kynningarmyndbandi leikskólans
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru að vinna í teymi sérkennslunnar og veita þeim börnum sem og deildum stuðning til þess að allir geti notið sín í námi. Skipuleggja starfið og það sem þarf að vinna að hverju sinni í samstarfi við sérkennslustjóra og aðra í sérkennsluteymi. Starfinu fylgir mikil samskipti við foreldra og samstarf um velferð barna.
Fríðindi í starfi
Menningarkort – bókasafnskort
Samgöngustyrkur
Sundkort
36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Heilsuræktarstyrkur
Hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Góð íslenskukunnátta
· Hreint sakavottorðÍslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Um er að ræða 100% stöðu sem eru laus nú þegar, en ráðið verður eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Bragadóttir, leikskólastjóri, í síma 822-6855 eða 411-3130 og á netfangið sigrun.bragadottir@reykjavik.is