Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi skólaárið 2025 - 2026

Háteigsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa til starfa skólaárið 2026 - 2027.

Hlutastarf Háteigsskóli 105
Sækja um

Háteigsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2026-2027.

Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 510 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Skólastarfið byggir á menntastefnu Reyjavíkurborgar, leiðsagnarnámi og teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi.

Háteigsskóli leggur ennfremur áherslu á góðan starfsanda og hefur skólinn hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.

Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.

Um er að ræða 75% stöðu tímabundið með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Staðan er laus frá 1. ágúst 2027 og er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera kennara til aðstoðar vegna sértækra þarfa nemenda.
  • Að aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins.
  • Að auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega og námslega.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

Hlunnindi í starfi

  • Menningar- og bókasafnskort.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort.
  • Heilsuræktarstyrktur.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Sigfúsdóttir skólastjóri á netfanginu gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is

Sækja um