Klettaskóli-Korpu óskar eftir tónmenntakennara í 50% starf
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og eru einkunnarorð skólans "Menntun fyrir lífið". Unglingadeild Klettaskóla flytur á Barðastaði 2, 113 Reykjavík og við leitum að öflugum tónmenntakennara í 50% starfshlutfall til að bætast í fjölbreyttan og lifandi starfsmannahóp skólans.
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Starfsmenn vinna í teymum og þurfa að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við krefjandi en gefandi verkefni. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".
Við óskum eftir tónmenntakennara í 50% starf frá og með 1. ágúst 2026. Í starfinu felst almenn tónmenntakennsla í bekkjum, auk þess að sjá um/taka þátt í ýmsum viðburðum í skólanum eins og jólaskemmtun, samsöng (kór) o.s.frv.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfa í þverfaglegu teymi list- og verkgreinakennara
- Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
- Samstarf við samkennara, foreldra og aðra fagaðila
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi á að starfa með börnum
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Lausnarmiðuð hugsun
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta (C1)
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Elín Arndís Gunnarsdóttir skólastjóri Klettaskóla-Korpu elin.arndis.gunnarsdottir@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2026