Til baka á starfasíðu

Deildarstjóri

Deildarstjóri/leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Seljaborg. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf haustið 2026. Um framtíðarstarf er að ræða.

Fullt starf Leikskólinn Seljaborg 109
Sækja um

Deildarstjóri

Deildarstjóri óskast til starfa við leikskólann Seljaborg, Tunguseli 2, 109 Reykjavík. Um framtíðarstarf er að ræða. Skólinn er nú þriggja deilda leikskóli með 48 börn. Fyrirhugað er að opna nýja deild í viðbyggingu sem nú er í undirbúningi. Gert er ráð fyrir að 18 börn verði á nýju deildinni og að leikskólinn verði þá fjögurra deilda með alls 66 börn.

Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágreninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf.

Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni framundan í Seljaborg. Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi.

Óskað er eftir aðila sem er tilbúinn til að taka þátt og þróa starfið og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamstarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum

Fríðindi í starfi

  • Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
  • Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
  • Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
  • Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
  • 36-38 stunda vinnuvika.

Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/félags leikskólakennara.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hulda Karen Eyjólfsdóttir leikskólastjóri, Hulda.karen.eyjolfsdottir@reykjavik.is

Sækja um