Virkniþjálfi í félagsmiðstöðina Borgir
Hefur þú áhuga á að taka þátt í að þróa öflugt félagsstarf í Austurhverfinu? Óskað er eftir virkniþjálfa í 100% starf.
Hefur þú áhuga á að taka þátt í að þróa öflugt félagsstarf í Austurhverfinu? Vinna að skipulagningu og framkvæmd félagsstarfs í félagsmiðstöðinni Borgum, sem eru í stöðugri þróun, í góðu samráði við þátttakendur sem eru á öllum aldri. Virkniþjálfi óskast í 100% stöðu og mun veita stuðning við sjálfsprottið félagsstarf. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsstarfs í samráði við þátttakendur, notendaráð og samstarfsfólk.
- Virkja hugmyndir sem upp koma með hugmyndafræði um virkni að leiðarljósi.
- Lögð er áhersla á metnað og áhuga á að takast á við ný verkefni í afar spennandi vinnuumhverfi þar sem lífsgleði fær að njóta sín.
- Sér meðal annars um auglýsingar, samfélagsmiðla, utanumhald verkefna og samstarf til eflingar félagsauðs.
- Önnur þau verkefni sem yfirmenn fela honum.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Þekking og reynsla af félagsstarfi, þjónustu við fólk og verkefnastjórnun er æskileg.
- Íslenskukunnátta B2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Birna Róbertsdóttir 411-1439 og í tölvupósti birna.robertsdottir@reykjavik.is.