Sérkennari/kennari/þroskaþjálfi eða uppeldismenntaður starfsmaður
Við leitum að sérkennara/kennara/þroskaþjálfa eða öðrum uppeldismenntuðum starfsmanni í Dalinn, sérdeild fyrir einhverfa nemendur í Langholtsskóla.
Langholtsskóli óskar eftir að ráða sérkennara/kennara/þroskaþjálfa eða annan uppeldismenntaðan starfsmann til að vinna í sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Um er að ræða 100% starf. Við leitum að lausnamiðuðum, sveigjanlegum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur ánægju af starfi með börnum og unglingum í jákvæðu umhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sérkennaramenntun/kennaramenntun/þroskaþjálfamenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu/þjálfun/stuðning við nemendur í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Áhersla á teymisvinnu.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Frekari upplýsingar
Staðan er laus frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 100% tímabundið starf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar gefa Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir skólastjóri, sigurlaug.hrund.svavarsdottir@reykjavik.is, og sesselja.audur.eyjolfsdottir@reykjavik.is