Til baka á starfasíðu

Deildarstjóri á ungbarnadeild Bakkaborgar

Bakkaborg er staðsett í hjarta Bakkahverfis, við Blöndubakka 2-4. Bakkaborg er fimm deilda leikskóli, þar dvelja 101 börn samtímis. Leikskólinn starfar eftir Uppeldi til ábyrgðar. 

Fullt starf Leikskólinn Bakkaborg 109
Sækja um

Við óskum eftir leikskólakennara sem er tilbúinn til að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera partur af okkar faglega og skemmtilega samfélagi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Viðkomandi vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t:

  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt lögum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, stefnu og skipulagi.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans á deildinni.
  • Annast daglega verkstjórn á deild, skipulagningu, framkvæmd og mati deildarstarfs.
  • Ber ábyrgð á upplýsingagjöf og samvinnu við foreldra.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.
  • Er í stjórnendateymi leikskólans og tekur þátt í gerð skólanámskrár, starfsáætlunar og þróunarverkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf leikskólakennara/kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Fríðindi í starfi

  • Frítt fæði.
  • Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík.
  • Samgöngusamningur ef notaður er vistvænn ferðamáti að mestu leyti.
  • Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík.
  • Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík.
  • 36 - 38 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur

Nánari upplýsingar veitir:

Elín Freyja Eggertsdóttir

Leikskólastjóri

Sími 4113240

bakkaborg@reykjavik.is

Sækja um