Leikskólakennari
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Klambra sem er sex deilda leikskóli til húsa á jarðhæð stúdentagarða Bandalags námsmanna við Háteigsveg.
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Klambra.
Klambrar er sex deilda leikskóli til húsa á jarðhæð stúdentagarða Bandalags námsmanna við Háteigsveg.
Allt starf á Klömbrum á að leiða til þess að börnin finni hamingju í verki, efli færni sína við að taka ákvarðanir og byggi á sínum eigin styrkleikum.
Við vitum að við lærum best með því að hlusta hvert á annað og taka vel í hugmyndir samstarfsmanna, kynnast samfélaginu sem við búum í og læra um það gamla til að öðlast skilning á því nýja.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Menningakort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Upplýsingar um starfið gefur Kristín Ómarsdóttir starfandi leikskólastjóri í síma 5111125 eða á netfanginu kristin.omarsdottir@reykjavik.is