Til baka á starfasíðu

Náttúrufræði- og samfélagsfræðikennari í Hagaskóla með umsjón

Hagaskóli leitar að umsjónarkennara í teymiskennslu í náttúrufræði og samfélagsfræði í 10. bekk fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða eins árs afleysingu.

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með um 600 nemendur í 8. til 10. bekk. 

Fullt starf Hagaskóli 107
Apply

Náttúrufræði- og samfélagsfræðikennari í Hagaskóla með umsjón

Hagaskóli leitar að umsjónarkennara í teymiskennslu í náttúrufræði og samfélagsfræði í 10. bekk fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða eins árs afleysingu. Náttúrufræði og samfélagsfræði eru kennd í lotum í teymiskennslu í 10. bekk þannig að umsækjendur þurfa að hafa þekkingu og færni í bæði náttúrufræði og samfélagsfræði. 

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með um 600 nemendur í 8. til 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, samvinnu, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.

Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir kennslu auk annarra gagna er málið varðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda í teymi með öðrum kennara í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vera umsjónarkennari í 10. bekk.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara.
  • Kennaramenntun með áherslu á náttúrufræði og/eða samfélagsfræði.
  • Brennandi áhugi og þekking á hugmyndum leiðsagnarnáms.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í samstarfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Að minnsta kosti íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og SÍ. 

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Inga Tómasdóttir, deildarstjóri mannauðs og rekstrar í Hagaskóla, gudrun.inga.tomasdottir@reykjavik.is

Apply