Til baka á starfasíðu

Íþróttakennari í Hagaskóla

Hagaskóli leitar að íþróttakennara í fullt starf fyrir skólaárið 2026-2027. 

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. til 10. bekk. Spennandi starf í skóla þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.

Fullt starf Hagaskóli 107
Apply

Íþróttakennari – Hagaskóli

Laus er til umsóknar staða íþróttakennara við Hagaskóla skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% stöðu.

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.

Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir kennslu auk hæfnisprófs til að mega sinna sundkennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sundkennsla
  • Annast kennslu nemenda í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara
  • Gilt hæfnispróf sundkennara skv. reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Kennaramenntun með áherslu á íþróttakennslu.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Apply