Til baka á starfasíðu

Verkefnastjóri skipulagsmála

Hefur þú ástríðu fyrir skipulagsmálum? 

Fullt starf Skipulagsmál 105
Sækja um

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur auglýsir eftir öflugum verkefnastjórum til starfa á skrifstofu skipulags- og byggingarmála. Um er að ræða tímabundna ráðningu til þriggja ára á deild skipulagsmála, í störf sem eru tilkomin vegna stórra verkefna við þróun byggðar. Við leitum að einstaklingum sem hafa áhuga á starfa að margþættri skipulagsvinnu í skapandi og faglegu starfsumhverfi þar sem teymisvinna, nýsköpun og framsækni er höfð að leiðarljósi.

Á skrifstofu skipulags- og byggingarmála starfar kraftmikið og hugmyndaríkt teymi með brennandi áhuga á margþættri skipulagsvinnu og borgarþróun. Verkefnin eru fjölbreytt og tengjast þróun byggðar í ólíkum mælikvörðum á stórum sem smáum reitum. Verkefnin fjalla um skipulagsmál og samhengi þeirra við umhverfið, sögu, lýðheilsu, loftslagsmál, samgöngur og fleira.

Starfssvið

  • Verkefnisstjórn og teymisvinna í fjölbreyttum verkefnum sem varða skipulag byggðar, opinna svæða í eigu ríkisins og borgarumhverfis.
  • Greiningarvinna og undirbúningur skipulagsgerðar á ríkislóðum.
  • Samskipti, upplýsingagjöf, ráðgjöf og samráð við íbúa, skipulagsráðgjafa og aðra hagaðila.
  • Ýmis tilfallandi verkefni tengd skipulags- og umhverfismálum borgarinnar sem falla undir verksvið skrifstofunnar.

Menntunar- og hæfnskröfur

  • Háskólamenntun í arkitektúr, landslagsarkitektúr eða skipulagsfræðum í samræmi við 5.mgr. 7.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
  • Haldbær reynsla af skipulagsmálum, málsmeðferð skipulagsáætlana og hæfni til að miðla þekkingu.
  • Rík þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð, framtakssemi og frumkvæði.
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
  • Reynsla í opinberri stjórnsýslu og þekking á lagaumhverfi er kostur.
  • Færni í notkun á algengum hugbúnaði og þekking á hönnunar-, umbrots-, og teikniforritum.
  • Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.

Nánar um starfið

  • Um er að ræða tímabundið fullt starf til þriggja ára og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
  • Nánari upplýsingar veitir Hjördís Sóley Sigurðardóttir deildarstjóri skipulagsmála; hjordis.soley.sigurdardottir@reykjavik.is
  • Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Sækja um