Til baka á starfasíðu

Sumarstarf á íbúðakjarnanum Kleppsvegi

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sumarstarf. Vinnutími er blandaður og felur í sér morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir. Um nokkrar stöður er að ræða og er starfsfhlutfallið 70-100%. 

Hlutastarf Íbúðakjarni Kleppsvegi 90 108
Sækja um

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sumarstarf. Vinnutími er blandaður og felur í sér morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir. Um nokkrar stöður er að ræða og er starfsfhlutfallið 70-100%.

Markmið og tilgangur starfs

Á Kleppsvegi er lögð áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi með það að markmiði að aðstoða þá í að skapa og þróa ný tækifæri í sínu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
  • Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
  • Markmiðið er að styðja einstaklinga við að búa á eigin heimili, stunda vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
  • Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins og laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.

Hæfnikröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg þá sér í lagi með einhverfum einstaklingum.
  • Bílpróf er nauðsynlegt.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 eða hærra samkvæmt evrópska tungumálarammanum https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Elín Jóhannsdóttir forstöðumaður ingibjorg.elin.johannsdottir@reykjavik.is

Sækja um