Leikskólakennari/Leiðbeinandi
Við í leikskólanum Austurborg leitum að leikskólakennara sem langar til að bætast í frábæra starfsmannahópinn okkar
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólanum Austurborg, Háaleitisbraut 70, 103 Reykjavík. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Austurborg er er fimm deilda leikskóli þar sem einkunnarorðin eru vil get og kann.
Leikskólinn vinnur í anda hugmyndafræði Reggio Emilia með áherslu á hreyfingu og skapandi starf. Við erum LAL –skóli http://www.leikuradlaera.is sem er námsleið í kennslu. Við leggjum áherslur á góðan starfsanda þannig að hver og einn fá notið sín í starfi.
Leikskólinn er sífelldri þróun og mótun og óskum við eftir áhugasömum kennara sem er tilbúinn að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera hluti af okkar faglega og skemmtilega samfélagi.
Myndband um leikskólann: https://www.austurborg.is/96-prufa/899-myndband
Í Austurborg er gott að vera og þar fer fram metnaðarfullt, skemmtilegt og gefandi starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Hreint sakarvottorð
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta B1 skv samevrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkur og Menningarkort fyrir söfn Rvk
- Vinnuvikan er 36 stundir
- Samgöngustyrkur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar veitir Ísleifur Örn Garðarson, aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu Isleifur.Orn.Gardarsson@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara