Deildarstjóri verkefnastjórnunar
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar leitar að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga til að leiða aðferðafræði verkefnastjórnunar hjá sviðinu.
Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu og reynslu af verkefnastjórnun, innleiðingu og verklagsvinnu, er þjónustulipur og með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða fjölbreytt stjórnunarstarf í lifandi umhverfi. Auk þess að innleiða aðferðafræði verkefnastjórnunar, vera til stuðnings við verkefnastjóra og eftirfylgni sér deildin um að leiða vinnustofur og spretti fyrir aðrar einingar á sviðinu.
Skrifstofa stjórnsýslu og gæða sér um stjórnsýslu- og gæðamál á sviðinu og falla verkefnastjórnunarmál þar undir, í sérstakri deild. Deildarstjóri verkefnastjórnunar ber ábyrgð á daglegum rekstri og faglegu starfi deildarinnar og að málsmeðferð og áherslur verkefna séu í samræmi við stefnu umhverfis- og skipulagssviðs og Reykjavíkurborgar.
Starfssvið
- Ábyrgð á daglegum rekstri og faglegu starfi deildar.
- Ábyrgð á þróun og innleiðingu á verklagi þegar kemur að verkefnastjórn þvert á skrifstofur sviðsins.
- Leiðir gerð verklags og ferla, þ.m.t. samræmdra skjala, gagna og sniðmáta, vegna verkefnastjórnunar á sviðinu.
- Utanumhald með verkefnastjórnunarkerfi sviðsins.
- Heldur utan um og leiðir vinnustofur og spretti í samvinnu við stjórnendur sviðsins.
- Leiðir fagteymi sviðsins um verkefnastjórn.
- Þátttaka í þverfaglegum teymum og starfshópum um málefni er varða starfsemina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verkefnastjórnun.
- Reynsla af verkefnastjórnun, IPMA vottun er kostur.
- Reynsla af stefnumótun er kostur.
- Stjórnunarreynsla og reynsla af kennslu- eða fræðslustarfi er æskileg.
- Leiðtogahæfileikar og mjög góð færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni og vilji til umbóta, frumkvæði og sjálfstæð vinnurögð.
- Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Íslenskukunnátta C1-C2 skv. evrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B2-C1.
Nánar um starfið
- Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlífið í borginni. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg og þar gegnir starfsfólkið lykilhlutverki með einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir.
- Umhverfis- og skipulagssvið hefur innleitt 36 stunda vinnuviku og starfar eftir áherslum Reykjavíkurborgar um heilsueflingu á vinnustöðum og leggur áherslu á gagnkvæman sveigjanleika og að stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
- Nánari upplýsingar um starfið veita Glóey Helgudóttir Finnsdóttir skrifstofustjóri, gloey.helgudottir.finnsdottir@reykjavik.is eða Þorvaldur Guðjónsson deildarstjóri ráðninga og starfsumhverfis, thorvaldur.gudjonsson@reykjavik.is.
- Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2026.