Hlutastarf á Mánabergi
Okkur á Mánabergi vantar öflugan starfskraft í hlutastarf. Ef þú hefur áhuga á að vinna að velferð barna og fjölskyldna þá hvetjum við þig til þess að sækja um. Um er að ræða aðra hvora helgi og eitt virkt kvöld í viku.
Starfslýsing:
Markmið er að veita börnum sem vistuð eru á vegum Barnaverndar Reykjavíkur öryggi, umhyggju og virðingu í heimilislegu umhverfi á meðan leitað er lausna í málum þeirra.
Einnig er starfað með forsjáraðilum/fjölskyldum í heild í nánu samstarfi í Greiningar- og leiðbeiningarvistun.
Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers barns og hverrar fjölskyldu og laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum þeirra hverju sinni með velferð þeirra að leiðarljósi.
Um er að ræða aðra hvora helgi og eitt virkt kvöld í viku, í 50% stöðu.
Helstu verkefni:
Hafa yfirsýn yfir þjónustuþarfir þeirra barna sem vistuð eru í úrræði, sjá til þess að þau hafi þann aðbúnað sem þau þurfa og veita þeim öryggi, umhyggju, virðingu og stuðning við virkni í þeirra daglega lífi.
Fylgja eftir Greiningar- og leiðbeiningarvistun út frá einstaklingsmiðuðum markmiðum til að kortleggja færniþætti, styrkleika og hindranir skjólstæðinga í samráði við uppeldis- og meðferðarráðgjafa og yfirmenn.
Virkja börn í daglegu líf, tengja þau við tómstundir, efla tengslanet og að viðhalda jákvæðum samskiptum og efla þau til sjálfstæðis við verkefni í daglegu lífi.
Vera meðvitaður um og fylgjast með hvort um sjálfskaðandi hegðun eða vímuefnaneyslu notenda sé að ræða og fylgja verklagi komi grunur upp um slíkt.
Sitja fundi og skrifa dagála.
Þrif, innkaup og matseld
Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Ábyrgð í starfi
Ber ábyrgð á að störf hans séu í samræmi við markmið og tilgang starfssins og að verkefnum sé framfylgt. Einnig ber starfsmaður ábyrgð á velferð barna sem vistuð eru og að halda utan um viðkvæmar persónulegar trúnaðarupplýsingar, vista þær með rafrænum hætti á viðeigandi stað og gæta þess þær komi ekki fyrir augu annarra.
Ber ábyrgð á að skrá í dagála með aðgát og á góðri íslensku, ásamt því að afla sér og viðhalda þekkingu sem starfið krefst.
Hann skal jafnframt þekkja og vinna samkvæmt verklagi starfsstaðar og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar og mannauð- og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.
Menntun og/eða réttindi sem krafist er:
Háskólamenntun á sviði uppeldis-, félags- eða heilbrigðisvísinda eða
önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla og hæfni sem krafist er:
Reynsla af starfi með börnum og foreldrum.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að miðla upplýsingum.
Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum.
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu máli og íslensku í rituðu máli.
Bílpróf.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veita Hulda L. Blöndal Magnúsdóttir forstöðumaður Hulda.L.Blondal.Magnusdottir@reykjavik.is eða
Regína jónsdóttir deildarstjóri regina.jonsdottir@reykjavik.is
Símanúmer: 411-9295