Til baka á starfasíðu

Uppeldis- og meðferðarráðgjafi á Mánabergi

Við á Mánabergi óskum eftir því að ráða metnaðarfullan uppeldis- og meðferðarráðgjafa til liðs við okkur. Leitum að háskólamenntuðum fagaðila í málefnum barna með áherslu á þroska og uppeldi. 

Fullt starf Mánaberg 104
Sækja um

Starfslýsing:

Uppeldis- og meðferðarráðgjafi vinnur eftir velferðarstefnu Reykjavíkurborgar við að þjónusta börn og fjölskyldur sem vistuð eru utan heimilis á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Markmiðið er að veita börnum öryggi, umhyggju og virðingu í heimilislegu umhverfi á meðan leitað er lausna í málum þeirra. Einnig er starfað með forsjáraðilum/fjölskyldum í heild í nánu samstarfi í Greiningar- og leiðbeiningarvistun. Í starfinu er leitast við að greina styrkleika og hindranir, meta færni við dagleg verkefni, byggja upp einfalda og skýra rútínu í daglegu lífi og efla skjólstæðinga til virkni.

Um er að ræða 100% stöðu og unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum.

Starfið er laust nú þegar. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hafa umsjón og yfirsýn yfir þjónustuþarfir þeirra barna sem vistuð eru í úrræðið, sjá til þess að þau hafi þann aðbúnað sem þau þurfa og veita þeim öryggi, umhyggju, virðingu og stuðning við virkni í þeirra daglega lífi.
  • Greina og í framhaldinu vinna með vanda fjölskylda sem vistaðar eru á Mánabergi.
  • Taka virkan þátt í þverfaglegu samstarfi og samráði við þá aðila sem koma að málavinnslu barnsins eða fjölskyldunnar.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði uppeldis-, félags- eða heilbrigðisvísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með börnum og foreldrum.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að miðla upplýsingum á faglegan hátt.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í faglegum vinnubrögðum.
  • Reynsla af því að vinna í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu máli og íslensku í rituðu máli.
  • Bílpróf.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Nánari upplýsingar veita Hulda L. Blöndal Magnúsdóttir forstöðumaður Hulda.L.Blondal.Magnusdottir@reykjavik.is eða

Regína jónsdóttir deildarstjóri regina.jonsdottir@reykjavik.is

Símanúmer: 411-9295

Sækja um