Til baka á starfasíðu

Sjúkraliði í heimahjúkrun Sléttuvegi

Heimahjúkrun Sléttuvegi leitar að öflugum sjúkraliða til starfa við heimahjúkrun. Við Sléttuveg 3,7,9 starfar samþætt teymi heimastuðnings og heimahjúkrunar. 

Fullt starf Heimahjúkrun Sléttuvegi 103
Sækja um

Austurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliðum til starfa í heimahjúkrun við Sléttuveg.

Um er að ræða ótímabundið starf í vaktavinnu í 80-100 % starfi á sólarhringsstað. 

Jákvæðni og liðsheild einkennir vinnustaðinn. Lögð er áhersla á þverfaglegt starf í samráði við þjónustuþega sem hafa fjölbreyttar hjúkrunarþarfir.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagi Íslands.  

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar.
  • Hjúkrunarþjónusta í heimahúsi í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og þjónustuþega
  • Taka virkan þátt í starfsemi teymis
  • Sinna sérhæfðri hjúkrunarmeðferð í samráði við teymisstjóra
  • Taka þátt í eftirfylgd og mati á hjúkrunaráætlunum í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Viðbótarnám er æskilegt. 
  • Starfsreynsla sem sjúkraliði í 3-5 ár er æskileg.
  • Reynsla af teymisvinnu og vinna með hjúkrunaráætlun er kostur
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Íslenska, gott málfar og góður frágangur á texta ( B1-B2- skv. evrópska tungumálarammanum)
  • Þekking á sjúkraskrákerfinu SÖGU æskileg
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks sem og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Logadóttir, hjúkrunarstjóri í gegnum netfangið halla.logadottir@reykjavik.is eða síma: 8239763

Sækja um